Heimsókn frá Tjarnarlandi

Tónlistarskólinn fékk afskaplega skemmtilega heimsókn mánudagsmorguninn 23. mars, en ţá komu til okkar elstu nemendurnir frá leikskólanum Tjarnarlandi. Ţessir nemendur eru greinilega margir vćntanlegir til okkar í Tónlistarskólann í haust, miđađ viđ áhugan sem ţau sýndu hér í skólanum. Nemendurnir fengu leiđsögn um skólann og fengu ađ hitta tónlistarkennara og nemendur og fengu ađ heyra spilađ á ýmis ólík hljóđfćri út öllum helstu hljóđfćrafjölskyldum. Gestirnir ungu voru til fyrirmyndar í alla stađi og greinilega mjög forvitnir um tónlist og hin ólíku hljóđfćri. Viđ ţökkum leikskólanum kćrlega fyrir heimsóknina og hlökkum virkilega til ađ kynnast mörgum ţessara nemenda betur í haust!


Svćđi

Tónlistarskólinn á Egilsstöđum

Tjarnarlönd 11, 700 Egilsstađir / Sími: 470 0570 / Netfang: tonlistarskoli.egilsstadir@mulathing.is
Skólastjóri: Sóley Ţrastardóttir (soley.thrastardottir@mulathing.is)